
Svo þú ert að leita að tækifærum í öðru Evrópulandi en átt í erfiðleikum með að fá vinnu á þínu sviði, eða starfið sem þú fannst passar ekki við menntun þína og hæfni. Vertu viss um að þú ert ekki ein(n) á báti.
Í víðara samhengi leiðir misræmi milli starfa og fólks til óhagkvæmni á vinnumarkaði og hærri velferðarkostnaðar fyrir stjórnvöld og þess vegna er ESB að skoða þetta mál. Í nýrri skýrslu eru skoðaðar þrjár tegundir misræmis sem um 4,3 milljónir ungra ESB-borgara á aldrinum 15 til 34 ára, sem flytja milli landa, verða fyrir. Þar kemur fram að þeir standa oft frammi fyrir meiri erfiðleikum en starfsmenn í heimalandi sínu þegar þeir reyna að finna störf sem passa við menntun þeirra og færni.
Hér er myndin í tölum:
Er menntunarstigið of hátt?
Að því er varðar hvort menntun og hæfni ungs fólks sem flytur innan ESB samræmist kröfum þeirra starfa sem það gegnir:
- 27% eru of menntuð fyrir núverandi starf sitt – nánast sama hlutfall og meðal fólks sem kemur frá löndum utan ESB (28%).
- Fleiri konur eru ofmenntaðar (31%) fyrir núverandi starf sitt en karlar (24%). En þegar kemur að því að hafa ekki tilskilin starfsréttindi gildir hið gagnstæða – karlar sem flytjast innan ESB eru líklegri til að uppfylla ekki tilskilin starfsréttindi (12%) en konur (9%).
- Á Spáni, í Hollandi og Austurríki starfar um það bil þriðjungur ungs fólks sem flyst innan ESB í starfi sem nýtir ekki menntun þess til fulls. Í Þýskalandi er ofmenntun hins vegar mun lægri, eða 17%.
Er það á þínu sviði?
Þegar kemur að því hvort störf ungs fólks sem flyst innan ESB tengist sérsviði þess:
- Um 51% eru í störfumsem samræmast námi þeirra náið, en 14% telja að engin tengsl séu þar á milli.
- Á Ítalíu eru aðeins 26% í störfum sem samræmast námi þeirra – sem er töluverður munur miðað við ítalska ríkisborgara (43%). Munurinn á milli farandfólks innan ESB og ríkisborgara er aðeins örlítið minni í Belgíu og Austurríki, en á Spáni minnkar hann niður í aðeins þrjú prósentustig: 52% samanborið við 55% meðal ríkisborgara.
Ræðurðu við verkefnið?
Þegar spurt var hvort þau teldu að færni þeirra samræmdist núverandi starfi:
- 25% afungs fólks sem flyst innan ESB sögðust vera ofmenntaðfyrir starfið sitt, samanborið við 18% þeirra sem vinna í heimalandi sínu.
- 28% kvenna töldu sig vera ofmenntaðar, samanborið við 23% karla.
- Í Belgíu og Austurríki sögðust 33% ungs fólks sem flyst innan ESB vera ofmenntað fyrir starfið sitt. Þýskaland sýnir mun lægri hlutdeild, eða 20%.
Eins og skýrslan sýnir er leiðin að rétta starfinu ekki alltaf einföld. Þjónusta á borð við EURES getur hjálpað til við að takast á við þessar áskoranir. Með verkfærum eins og Evrópskum atvinnudögum og neti þjálfaðra ráðgjafa styður EURES bæði atvinnuleitendur og atvinnurekendur við að finna rétta samsvörun.
Í millitíðinni geturðu notað EURES-skýrsluna um skort og umframframboð á vinnuafli 2025 og gagnvirka mælaborðið til að sjá hvar færni þín er mest eftirsótt víðs vegar í Evrópu.
Tengdir hlekkir:
Ungt fólk sem flytur innan ESB og misræmi á vinnumarkaði
Nánari upplýsingar:
Finna Eures-ráðgjafa
Líf‑ og starfsskilyrði í Eures-löndum
Atvinnugagnagrunnur EURES
Þjónusta EURES fyrir vinnuveitendur
Viðburðadagatal EURES
Næstu viðburðir á netinu
EURES á Facebook
EURES á X
Eures á LinkedIn
- Útgáfudagsetning
- 9 Júlí 2026
- Höfundar
- European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
- Viðfangsefni
- Viðskipti /Frumkvöðlastarf
- Vinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttir
- Fréttir/skýrslur/tölfræði
- Nýliðunarstraumar
- Ungmenni
- Tengdir hlutar
- Geirinn
- Accomodation and food service activities
- Activities of extraterritorial organisations and bodies
- Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
- Administrative and support service activities
- Agriculture, forestry and fishing
- Arts, entertainment and recreation
- Construction
- Education
- Electricity, gas, steam and air conditioning supply
- Financial and insurance activities
- Human health and social work activities
- Information and communication
- Manufacturing
- Mining and quarrying
- Other service activities
- Professional, scientific and technical activities
- Public administration and defence; compulsory social security
- Real estate activities
- Transportation and storage
- Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
- Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles