Fara yfir í aðalefni
Kennimerki
EURES (EURopean Employment Services)

Upplýsingar um launabil eru að breyta ráðningarferlinu. Er fyrirtækið þitt tilbúið?

Nýjar reglur ESB um gagnsæi launa taka nú gildi um allt ESB. Kynntu þér hvernig skýrar upplýsingar um laun geta aukið traust, laðað að hæft starfsfólk og veitt fyrirtækinu þínu samkeppnisforskot.

  • fréttaskýring
  • 2 Október 2026
  • European Labour Authority, Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
  • 3 mín. lestur

Frá og með júní 2026 gera reglur um gagnsæi launa það að skyldu um allt ESB að birta launabil í starfsauglýsingum eða fyrir fyrsta starfsviðtal. Þótt þessi breyting kunni að kalla á einhverja aðlögun í stjórnsýslu er hún jafnframt stórt tækifæri til að byggja upp traust meðal mögulegra umsækjenda.

Umsækjendur kunna að meta gagnsæi og skýrt launabil sýnir að þú virðir tíma þeirra og leggur áherslu á sanngirni. Það hjálpar einnig til við að útiloka strax umsækjendur sem hafa aðrar launavæntingar en fyrirtækið getur mætt og sparar þér þannig tíma í óþarfa starfsviðtöl. Í stað þess að líta á þetta sem íþyngjandi skriffinnsku skaltu líta á það sem tækifæri til að sýna fram á heiðarleg og vönduð vinnubrögð fyrirtækisins. Með því að veita skýrar upplýsingar um laun nærðu frekar til umsækjenda sem hafa raunverulegan áhuga á starfinu og fyrirtækjamenningunni, en ekki aðeins þeirra sem sækjast eftir háum launum.

Hvernig getur gagnsæi launa nýst fyrirtækinu þínu?

Hvernig er best að standa að þessu? Hér eru nokkur ráð til að tryggja að þú sért vel undirbúin/n:

  • Fyrst skaltu endurskoða núverandi launakerfi þitt. Gakktu úr skugga um að launabil byggist á hlutlægum viðmiðum, svo sem hæfni og reynslu, en ekki fyrri launum (sem ekki er lengur heimilt að spyrja um).
  • Gefðu nákvæmar upplýsingar í starfsauglýsingum: „45.000–55.000 evrur, eftir reynslu“ er mun skýrara en „samkeppnishæf laun“. Skýrar upplýsingar um laun draga úr óvissu hjá umsækjendum og sýna að fyrirtækið leggur áherslu á nútímaleg og sanngjörn vinnubrögð.
  • Nýttu jafnframt tækifærið til að kanna hvort launamunur sé á milli kynja. Nýju reglurnar krefjast þess að fyrirtæki með að minnsta kosti 100 starfsmenn birti upplýsingar um launamun kvenna og karla. Því er mikilvægt að kanna hvort einhver vandamál séu í launakerfinu sem skýrt geta slíkan mun og bregðast við þeim.
  • Upplýstu einnig starfsfólk um allar breytingar. Þegar starfsfólk sér að fyrirtækið grípur til aðgerða til að tryggja gagnsæi launa getur það bætt starfsandann og stuðlað að því að starfsfólk haldist lengur í starfi.

Mundu að gagnsæi snýst ekki aðeins um að forðast sektir heldur einnig um að skapa fyrirtækinu gott orðspor sem eftirsóknarverður vinnustaður.

Að nýta EURES til sanngjarnra ráðninga

Það er ekki alltaf einfalt að fylgja þessum nýju reglum þegar starfsfólk er ráðið frá öðrum löndum. Þess vegna er EURES-netið vel í stakk búið til að aðstoða þig við að laga þig að breyttum kröfum. EURES-ráðgjafar eru sérfræðingar í hreyfanleika vinnuafls milli landa og geta veitt upplýsingar og ráðgjöf um ráðningar frá öðrum löndum, þar á meðal um starfskjör og ráðningarvenjur í hverju landi. Þekking þeirra getur hjálpað þér að átta þig betur á því hvernig best er að kynna atvinnutækifæri fyrir umsækjendum erlendis.

Á heildina litið stuðlar EURES að sanngjörnum hreyfanleika vinnuafls. Með því að auglýsa laus störf á EURES sýnirðu atvinnuleitendum að fyrirtækið þitt sé traust og vel undirbúið fyrir framtíðina. Hvort sem þú ræður starfsfólk innanlands eða leitar að starfsfólki frá öðrum Evrópulöndum geturðu nýtt þessar breytingar til að breyta nýjum kröfum í samkeppnisforskot.

Lestu um helstu ástæður þess að fólk heldur tryggð við vinnuveitendur sína.

 

Tengdir hlekkir:

Tilskipun ESB um launagagnsæi

EURES-ráðgjafar

Raunverulega ástæðan fyrir því að fólk helst í starfi

Nánari upplýsingar:

Evrópskir atvinnudagar

Finna Eures-ráðgjafa

Líf‑ og starfsskilyrði í Eures-löndum

Atvinnugagnagrunnur EURES

Þjónusta EURES fyrir vinnuveitendur

Viðburðadagatal EURES

Næstu viðburðir á netinu

EURES á Facebook

EURES á X

Eures á LinkedIn

Útgáfudagsetning
2 Október 2026
Höfundar
European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
Viðfangsefni
  • Viðskipti /Frumkvöðlastarf
  • Ábendingar og ráð
  • Vinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttir
  • Fréttir/skýrslur/tölfræði
  • Nýliðunarstraumar
Tengdir hlutar
Geirinn
  • Accomodation and food service activities
  • Activities of extraterritorial organisations and bodies
  • Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
  • Administrative and support service activities
  • Agriculture, forestry and fishing
  • Arts, entertainment and recreation
  • Construction
  • Education
  • Electricity, gas, steam and air conditioning supply
  • Financial and insurance activities
  • Human health and social work activities
  • Information and communication
  • Manufacturing
  • Mining and quarrying
  • Other service activities
  • Professional, scientific and technical activities
  • Public administration and defence; compulsory social security
  • Real estate activities
  • Transportation and storage
  • Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
  • Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles

Fyrirvari

Greinum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar upplýsingar um málefni líðandi stundar og stefnur og örva umræður og umræður. Efni þeirra endurspeglar ekki endilega skoðun Vinnumálastofnunar Evrópu (ELA) eða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ennfremur styðja EURES og ELA ekki vefsíður þriðja aðila sem nefnd eru hér að ofan.