Fara yfir í aðalefni
Kennimerki
EURES (EURopean Employment Services)

Meira en leigan: Raunverulegur kostnaður við að flytja til útlanda vegna vinnu

Ertu að flytja til annars ESB-lands vegna vinnu? Láttu ekki óvæntan kostnað koma þér á óvart. Hér finnurðu hagnýt ráð um hvernig þú kemst fjárhagslega af, allt frá tryggingargjöldum fyrir veitur til fyrstu launagreiðslunnar.

  • fréttaskýring
  • 22 Október 2026
  • European Labour Authority, Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
  • 3 mín. lestur

Þú hefur tryggt þér vinnu og fundið íbúð, en áður en þú pakkar niður skulum við fara yfir þann kostnað sem þú þarft að standa straum af strax og á fyrstu vikunum í nýju landi. Þegar fólk skipuleggur flutninga til útlanda beinist athyglin yfirleitt að augljósum útgjöldum, svo sem mánaðarlegri leigu. En leigan er aðeins byrjunin. Það eru nokkur önnur útgjöld sem þú þarft að hafa í huga.

Falinn stofnkostnaður

Í mörgum ESB-löndum krefjast leigusalar tryggingar sem nemur tveggja til þriggja mánaða leigu, auk þess sem greiða þarf fyrsta mánuðinn fyrirfram. Þú gætir því þurft að greiða fyrirfram sem nemur allt að fjögurra mánaða leigu áður en þú færð lyklana að íbúðinni. Þá bætist við kostnaður við veitur. Uppsetningu á rafmagni, gasi, interneti og vatni fylgja oft tengigjöld eða fyrirframgreiddar tryggingar, sérstaklega ef þú hefur ekki lánasögu í landinu eða ert ekki með ótímabundinn ráðningarsamning Einnig má ekki gleyma samgöngukostnaði. Þarftu að kaupa mánaðarkort í almenningssamgöngur strax við komuna?  Eða þarftu jafnvel að kaupa notaðan bíl ef almenningssamgöngur eru takmarkaðar?

Þessi upphaflegi kostnaður getur auðveldlega numið 3.000–5.000 evrum í borgum eins og Berlín eða Barcelona. Í dýrari höfuðborgum, eins og Dublin eða Kaupmannahöfn, gæti upphæðin verið töluvert hærri. Ef þú hefur ekki lagt þessa upphæð til hliðar gætirðu lent í fjárhagsvandræðum strax í upphafi.

Fyrsti mánuðurinn án fullra launa

Svona er staðan í raun og veru: fyrstu launin þín berast kannski ekki þegar þú átt von á þeim. Mörg fyrirtæki greiða laun eftirá. Það þýðir að þú vinnur allan september en færð ekki launin greidd fyrr en seint í október. Með öðrum orðum, ef þú flytur til útlanda í byrjun september þarftu að eiga nóg til að standa undir framfærslukostnaði í sex til átta vikur, ekki bara fjórar.

Við þetta bætist kostnaður vegna nauðsynlegra skjala. Eftir því í hvaða landi þú ert gætir þú þurft að greiða fyrir skráningu lögheimilis, skattnúmer, viðbótarsjúkratryggingu (ef vinnuveitandi þinn veitir hana ekki strax) eða jafnvel löggiltar þýðingar á prófskírteinum þínum. Þessi umsýslugjöld eru fljót að safnast upp.

Ef þú tekur fjölskylduna þarftu að taka með í reikninginn kostnað við skólavist barna og fyrirframgreiðslur fyrir barnagæslu. Ef þú átt ekki varasjóð getur biðin eftir fyrstu laununum eftir flutninginn valdið miklu álagi.

Hvernig EURES getur hjálpað þér að undirbúa flutninginn

Það getur verið erfitt að takast á við þetta upp á eigin spýtur, en þú þarft ekki að gera það án hjálpar. Kaflinn um Vinnuskilyrði og lífskjör, í Evrópu á EURES-vefnum veitir mikið af gagnlegum upplýsingum um mikilvæg málefni, svo sem húsnæðisleit, skólagöngu, skatta, framfærslukostnað, heilbrigðismál, félagslega löggjöf og viðurkenningu á menntun og starfsréttindum.

EURES ráðgjafar geta einnig veitt mikilvæga leiðsögn og stuðning. Þeir geta veitt þér upplýsingar um tryggingarfé vegna leigu, veitukostnað og hvenær laun eru yfirleitt greidd í landinu sem þú flytur til. Þeir geta líka útskýrt hvaða skjöl þú þarft að hafa tilbúin áður en þú ferð og hvort þú eigir rétt á flutningsstyrk eða annarri aðstoð. Með því að hafa tímanlega samband við EURES-ráðgjafa geturðu gert fjárhagsáætlun og hafið nýja ævintýrið án þess að steypa þér í skuldir.

Viltu fá frekari upplýsingar um húsaleit innan ESB? Hér er gátlisti til að auðvelda þér undirbúninginn.

 

Tengdir hlekkir:

Vinnuskilyrði og lífskjör, í Evrópu

EURES-ráðgjafar

Leit að húsnæði í EvrópusambandinuHér er best að byrja

Nánari upplýsingar:

Evrópskir atvinnudagar

Finna Eures-ráðgjafa

Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum

Atvinnugagnagrunnur EURES

Þjónusta EURES fyrir vinnuveitendur

Viðburðadagatal EURES

Næstu viðburðir á netinu

EURES á Facebook

EURES á X

Eures á LinkedIn

Útgáfudagsetning
22 Október 2026
Höfundar
European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
Viðfangsefni
  • Viðskipti /Frumkvöðlastarf
  • Verkfærakista ESB fyrir hreyfanleika
  • Ábendingar og ráð
  • Vinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttir
  • Fréttir/skýrslur/tölfræði
Tengdir hlutar
Geirinn
  • Accomodation and food service activities
  • Activities of extraterritorial organisations and bodies
  • Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
  • Administrative and support service activities
  • Agriculture, forestry and fishing
  • Arts, entertainment and recreation
  • Construction
  • Education
  • Electricity, gas, steam and air conditioning supply
  • Financial and insurance activities
  • Human health and social work activities
  • Information and communication
  • Manufacturing
  • Mining and quarrying
  • Other service activities
  • Professional, scientific and technical activities
  • Public administration and defence; compulsory social security
  • Real estate activities
  • Transportation and storage
  • Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
  • Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles

Fyrirvari

Greinum er ætlað að veita notendum EURES vefgáttarinnar upplýsingar um málefni líðandi stundar og stefnur og örva umræður og umræður. Efni þeirra endurspeglar ekki endilega skoðun Vinnumálastofnunar Evrópu (ELA) eða framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Ennfremur styðja EURES og ELA ekki vefsíður þriðja aðila sem nefnd eru hér að ofan.