Gerðu hana stutta og skorinorða.
Hvort sem þú sækir um iðnnám, lærlingsstöðu, eða vinnu, er líklegt að ferilskrá þín sé í samkeppni við margar aðrar. Þú vilt alls ekki að upptekinn ráðningarstjóri fletti bara í gegnum fyrstu blaðsíðurnar af nosturssamri átta blaðsíðna ferilskrá þinni, eða, verst af öllu, kíki ekki einu sinni á hana því hún er svo löng. Hafðu hana stutta og skorinorða – tvær blaðsíður er almennt álitin passleg lengd – og passaðu að ráðningarstjórinn finni auðveldlega mikilvægustu upplýsingarnar um þig og reynslu þína.
Hafðu hana viðeigandi
Spurðu sjálfa(n) þig: Hvað þarf þessi ráðningarstjóri að vita? Það er örugglega annað en síðasti ráðningarstjóri, þannig að þú skalt færa hlutina til, taktu annað út og hafðu bara með það sem skiptir máli. Og mundu að þó að það að þér finnst gaman að elda og hlusta á tónlist, er það líklega ekki eitthvað sem ráðningarstjórinn hefur áhuga á, nema þú sért að sækja um starf í veitingabransanum eða tónlistariðnaðinum. Notaðu þetta mikilvæga pláss fyrir eitthvað sem sýnir að þú hentir starfinu sem er í boði.
Verðu sjálfsörugg(ur), en raunhæf(ur)
Það getur verið vandasamt að hæla sjálfum sér – of mikið og þú hljómar hrokafull(ur), með óraunhæf afrek sem ráðningarstjóranum gæti fundist hljóma ósatt. Of lítið og þú fellur kannski í skuggann og ert bara enn ein ferilskráin í langri röð. Passaðu að það sem þú skrifar sýni kunnáttu þína og reynslu, en sé líka raunhæft og þú getir stutt það í viðtali.
Leggðu áherslu á það sem þú afrekaðir, ekki bara það sem þú gerðir
Það getur verið auðvelt að detta í það að telja bara upp reynslu þína, án samhengis eða árangurs. Reynsla er frábær, en hún segir ráðningarstjóranum ekkert um það sem þú hefur raunverulega afrekað eða það sem þú hefur lagt fram á vinnustaðnum. Ef þú hefur átt þátt í að koma með ný viðskipti til fyrirtækisins, hvaða ávinning hafði það í för með sér? Ef þú hefur tekið þátt í þjálfunarferli, hvaða áhrif hafði það? Svona upplýsingar sýna ráðningarstjóra hvaða aukið gildi þú kemur með.
Sérsníða, sérsníða, sérsníða
Fyrir ráðningarstjóra er ekkert meira fráhrindandi en að lesa um hvernig þig hefur alltaf langað til að vinna í bifreiðaiðnaðinum... Þegar þú ert að sækja um starf hjá lyfjafyrirtæki. Passaðu að svara því sem leitað er eftir í starfsauglýsingunni og að sérsníða ferilskránna í samræmi við það.
Gangi þér vel með að aðlaga ferilskránna og ef þig vantar góð ráð um hvernig þú getur skrifað fullkomið kynningarbréf eða hvernig þú neglir viðtal, erum við með lausnina.
Tengdir hlekkir:
hvernig þú getur skrifað fullkomið kynningarbréf
Nánari upplýsingar:
Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum
Vinnugagnagrunnur Eures
Þjónusta Eures fyrir atvinnurekendur
Viðburðadagatal Eures
Næstu viðburðir á Netinu
Eures á Facebook
Eures á Twitter
Eures á LinkedIn
Eures á Google+
Upplýsingar
- Útgáfudagsetning
- 26 September 2017
- Höfundar
- European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
- Viðfangsefni
- Ábendingar og ráð
- Nýliðunarstraumar
- Ungmenni
- Geirinn
- Accomodation and food service activities
- Activities of extraterritorial organisations and bodies
- Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
- Administrative and support service activities
- Agriculture, forestry and fishing
- Arts, entertainment and recreation
- Construction
- Education
- Electricity, gas, steam and air conditioning supply
- Financial and insurance activities
- Human health and social work activities
- Information and communication
- Manufacturing
- Mining and quarrying
- Other service activities
- Professional, scientific and technical activities
- Public administration and defence; compulsory social security
- Real estate activities
- Transportation and storage
- Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
- Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles