Hvað með að einbeita sér að færni sem fyrirtæki eru að leita að? Á síðustu árum hefur LinkedIn fylgst með færni sem fyrirtæki þurfa mest á að halda á ársgrundvelli og fyrirtækið gaf nýlega út niðurstöður sínar fyrir 2019. LinkedIn notaði gögn sem þeir söfnuðu í gegnum vefsíðu sína til að finna út hvaða færni er mest eftirspurn eftir miðað við framboð og þrengdi lista af um 50.000 tegundum færni niður í þá 30 sem er mest eftirspurn eftir (5 „mjúkar“ og 25 „harðar“).
Sjáðu hvaða færni komst á listann hér að neðan...
Mjúk færni
Mjúk færni sem fyrirtæki leita að er gjörn á að vera nokkuð samkvæm sjálfri sér frá ári til árs, en mikilvægi hennar fer þó vaxandi eftir því sem heimurinn verður stafrænni.
- Sköpunargáfa: Þó að tölvur og gervigreind geti gert margt er sköpunargáfa enn mikils metinn mannlegur eiginleiki.
- Fortöluhæfni: Fáar vörur selja sig sjálfar, þær treysta á að fyrirtæki ráði starfsfólk sem hefur getu til að sannfæra viðskiptavini um að kaupa vörurnar.
- Samvinna: Samvinna liggur í hjarta allra góðra fyrirtækja og í sívaxandi mæli krefjast háþróuð verkefni sífellt hæfari liðsmanna.
- Aðlögunarhæfni: Heimurinn breytist hratt og þeir sem geta hratt nýju umhverfi, verklögum og tækni munu dafna.
- Tímastjórnun: Hæfileikinn til að geta stjórnað tíma sínum á skilvirkan hátt er færni sem er gagnleg í gegnum allan starfsferil þinn.
Hörð færni
Það kemur ekki á óvart að færni sem tengist tækni og stafrænum vettvangi er yfirgnæfandi á listanum, en einnig hefur eitthvað af hefðbundnari færni slæðst með:
- Skýjavinnsla: Þessa dagana virðist allt tengjast skýi, sem þýðir að tengd færni er sérstaklega eftirsóknarverð meðal atvinnurekenda.
- Gervigreind: Frá Alexa til Siri hefur gervigreind orðið stór hluti af lífi okkar og það lítur út fyrir að það eigi bara eftir að stækka.
- Greinandi hugsun: Það er mikið af gögnum þarna úti. Getan til að sjá yfir þessi gögn og nota þau til að taka upplýstar ákvarðanir er mjög mikils metið hjá fyrirtækjum.
- Mannauðsstjórnun: Það að geta stjórnað fólki og laða fram það besta hjá því er gömul færni, en mikilvæg.
- Hönnun notendaupplifunar (UX): Nú þegar væntingar neytenda og magn samkeppni vex er mikil eftirspurn eftir þeim sem geta aukið ánægju notenda af vöru.
- Þróun farsímaappa: Öpp eru áfram í miklum uppgangi í sífellt tæknivæddari heimi.
- Myndbandsframleiðsla: Myndbandsframleiðsluiðnaðurinn er í miklum blóma og fyrirtæki leita að starfsfólki sem hefur þekkingu á nýjustu tækni.
- Söluforysta: Sala gefur hagnað, sem gerir þetta að lífsnauðsynlegri færni fyrir öll fyrirtæki í verslunarrekstri.
- Þýðingar: Þökk sé tækni geta fyrirtæki auðveldlega náð til áhorfenda um allan heim. Skilvirk samskipti við þá krefst þó hæfileika þýðenda.
- Hljóðframleiðsla: Auknar vinsældir hlaðvarpa, hljóðbóka og annarra sniða hljóðsamskipta hefur leitt til aukinnar eftirspurnar eftir þeim sem geta framleitt þau.
- Málgreining: Þó að tölvur séu alltaf að verða háþróaðri þurfa þær ennþá hjálp við að skilja mannleg tungumál. Þar kemur málgreiningarhæfni inn.
- Vísindaleg tölvuvinnsla: Ef þú getur leyst vandamál sem fela í sér mikið gagnamagn á skilvirkan hátt, munu fyrirtæki taka þér fagnandi.
- Leikjaþróun: Á síðustu áratugum hefur leikjafræði orðið sífellt stærri iðnaður sem færir með sér ný tækifæri.
- Markaðssetning á samfélagsmiðlum: Eins lengi og samfélagsmiðlar halda áfram að vera vinsæl leið fyrir fyrirtæki til að ná til áhorfenda verða þeir sem búa yfir tengdri hæfni eftirsóttir.
- Kvikun: Vinsældir myndbanda og endurvakning GIF hefur fært kvikunarhæfni upp í topp 25.
- Viðskiptagreining: Greinendur eru sífellt að verða verðmætari fyrirtækjum sem leitast eftir að bæta kerfi sín og auka hagnað.
- Blaðamennska: Sífellt fleiri fyrirtæki leita að hæfileikaríkum skrifurum sem geta búið til sannfærandi efni.
- Stafræn markaðssetning: Uppgangi stafræns efnis hefur fylgt uppgangur stafrænnar markaðssetningar - og eftirspurnar eftir tengdri hæfni.
- Iðnhönnun: Áratugum saman hefur verið eftirspurn eftir fágaðri, áhrifamikilli og hagnýtri hönnun.
- Samkeppnishæf stefnumörkun: Augliti til auglitis við vaxandi samkeppni þurfa fyrirtæki fólk sem hjálpa þeim að vera skrefinu framar en samkeppnisaðilar.
- Viðskiptavinaþjónustukerfi: Þó nokkur viðskiptavinaþjónustustórslys sem vöktu mikla athygli á árinu 2018 hafa ýtt undir mikilvægi sterks kerfis sem snýr að viðskiptavinum.
- Hugbúnaðarprófanir: Það er ekkert verra fyrir fyrirtæki heldur en að gefa út nýja vöru sem er full af villum. Þar kemur hugbúnaðarprófari sterkur inn!
- Gagnavísindi: Gríðarlegt magnið af upplýsingum sem er tiltækt í dag og þörfin á að túlka það hefur leitt til þess að færni eins og gagnavísindi komst á þennan lista.
- Tölvugrafík: Nútíma neytendur búast við tölvugrafík í fremstu röð, sem gerir það að verkum að starfsfólk með þessa hæfni er mikilvægt fyrir alla vinnuveitendur.
- Fyrirtækjasamskipti: Eins og á við um viðskiptavinaþjónustukerfi hafa PR-stórslys ársins 2018 sýnt hversu mikilvægt það er fyrir fyrirtæki að hafa starfsfólk sem getur tjáð sig skilvirkt.
Tengdir hlekkir:
LinkedIn: Hæfnin sem fyrirtæki þarfnast mest 2019
Nánari upplýsingar:
Finna EURES-ráðgjafa
Atvinnu- og búsetuskilyrði í EURES-löndum
Vinnugagnagrunnur EURES
Þjónusta EURES fyrir vinnuveitendur
Viðburðadagatal EURES
Næstu viðburðir á Netinu
EURES á Facebook
EURES á Twitter
EURES á LinkedIn
Upplýsingar
- Útgáfudagsetning
- 7 Febrúar 2019
- Höfundar
- European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
- Viðfangsefni
- Viðskipti /Frumkvöðlastarf
- Ytri EURES fréttir
- Ytri hagsmunaaðilar
- Ábendingar og ráð
- Vinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttir
- Fréttir/skýrslur/tölfræði
- Nýliðunarstraumar
- Samfélagsmiðlar
- Ungmenni
- Geirinn
- Accomodation and food service activities
- Activities of extraterritorial organisations and bodies
- Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
- Administrative and support service activities
- Agriculture, forestry and fishing
- Arts, entertainment and recreation
- Construction
- Education
- Electricity, gas, steam and air conditioning supply
- Financial and insurance activities
- Human health and social work activities
- Information and communication
- Manufacturing
- Mining and quarrying
- Other service activities
- Professional, scientific and technical activities
- Public administration and defence; compulsory social security
- Real estate activities
- Transportation and storage
- Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
- Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles