Í bæklingnum, sem heitir "Að láta hlutina ganga upp í Danmörku", er fjallað um reynslu og mótlæti átta einstaklinga, öllum úr mjög ólíkum starfsstéttum, sem yfirgáfur heimili sín, vini og fjölskyldur til að hefja danskt ævintýri.
Workindenmark er opinber vinnumiðlun sem hefur það markmið að hjálpa alþjóðlegum umsækjendum að finna starf á danska markaðnum og aðstoða vinnuveitendur að finna starfsfólk í stöður sem erfitt er að manna. Bæklingurinn er gefinn út sem hjálpargagn til að gefa raunverulega tilfinningu fyrir því hvað það þýðir að flytjast búferlum og búa í Danmörku sem útlendingur.
"Að láta hlutina ganga upp í Danmörku" sýnir þau fjölmörgu tækifæri sem er að finna á danska vinnumarkaðnum. Einstaklingarnir sem koma fram í bæklingnum fundu nýjar stöður á ýmsum starfssviðum, svo sem í verkfræði, heilbrigðisþjónustu, lífsvísindum, fjarskiptum og upplýsingatækni.
Bæklingurinn býður upp á innsýn í ástæðurnar fyrir flutningnum, fyrstu kynnin af landinu og menningunni, erfiðleikana sem fólk glímdi við og hvernig það komst yfir þá, og blæbrigðamuninn sem það tók eftir við komuna til landsins.
Eins og Pedro Leitao, sem flutti til Aars frá Lissabon, Portúgal nefnir: "Það sem kom mér mest á óvart var hvað Danirnir voru opnir ... eftir aðeins tvær vikur hafði ég fengið boð um að koma í kvöldverð."
Aðrir útskýra hvað þeim kom á óvart hvað það er lítil stigskipting í danska stjórnunarstrúktúrnum, sem gerir fólki kleift að ná starfsframa hraðar og á auðveldari hátt en í sumum öðrum löndum.
Bæklingurinn gefur þér dýpri skilning á vinnu-lífs jafnvæginu í Danmörku. Eins og Fabrizio Moroni, sem er frá Mílanó en býr núna í Skanderborg, segir: "Það sem hefur komið mér virkilega á óvart er sú staðreynd að hér er allt mun afslappaðra en ég á að venjast, en samt eru afköstin mikil ... Hérna vinn ég minna, en á markvissari hátt. Það er stór munur á vinnumenningu.
Bæklingurinn gefur þér góða tilfinningu fyrir þeim raunveruleika sem felst í því að taka slíkt skref. Þetta er meira en tölfræði og tölur, heldur raunverulegt fólk og reynsla þess, í þeirra eigin orðum.
Ef þú ert að leita að nýju starfi, breytingu á starfsferli og nýjum lífsmáta, því ekki að íhuga Danmörku. Hafðu samband við Workindenmark til að fá þitt eigið eintak af ‘Að láta hlutina ganga upp í Danmörku’ eðasæktu pdf útgáfuna á vefsíðunni. Þú getur haft samband með tölvupósti workindenmarkworkindenmark [dot] dk (workindenmark[at]workindenmark[dot]dk) eða í gegnum lifandi spjall á hverjum föstudegi frá 10 f.h. - 1 e.h. (CET).
Tengdir hlekkir:
Nánari upplýsingar:
Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum
EURES Vinnugagnagrunnur
EURES þjónusta fyrirvinnuveitendur
Viðburðadagatal Eures
Væntanlegir Viðburðir á netinu
EURES á Facebook
Eures á Twitter
EURES á LinkedIn
Upplýsingar
- Útgáfudagsetning
- 21 Febrúar 2018
- Höfundar
- European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
- Viðfangsefni
- Árangurssögur
- Tengdir hlutar
- Geirinn
- Accomodation and food service activities
- Activities of extraterritorial organisations and bodies
- Activities of households as employers, undifferentiated goods- and services
- Administrative and support service activities
- Agriculture, forestry and fishing
- Arts, entertainment and recreation
- Construction
- Education
- Electricity, gas, steam and air conditioning supply
- Financial and insurance activities
- Human health and social work activities
- Information and communication
- Manufacturing
- Mining and quarrying
- Other service activities
- Professional, scientific and technical activities
- Public administration and defence; compulsory social security
- Real estate activities
- Transportation and storage
- Water supply, sewerage, waste management and remediation activities
- Wholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles