Svona byrjar þú
Sem borgari í ESB hefur þú rétt á að stofna fyrirtæki í hverju sem er af aðildarríkjunum.
Til að byrja að klippa á skriffinnskuna skaltu fara á Sjálfstæð atvinnustarfsemi (vinnuskilyrði og lífskjör). Veldu landið sem þú vilt opna SME í úr fellilistanum. Hann ætti að leiða þig skref fyrir skref í gegnum ferlið.
Ráðgjöf um fjármögnun
EURES veitir ekki beina fjármögnun en það eru þó nokkur ESB-verkefni sem bjóða lán eða styrki eftir því hvers konar SME þú ert með. Til að sjá hvort það er til fjármögnunarverkefni sem getur hjálpað SME-inu þínu, skaltu lesa Byrjendaleiðarvísir að ESB-fjármögnun.
Ef þú ert að spá í láni eða hlutabréfasölu, ættirðu að prufa COSME. Það er ESB-verkefni fyrir Samkeppnishæfni fyrirtækja og lítilla og meðalstórra fyrirtækja (2014-2020). Það býður upp á aðgang að lánum í gegnum fjármálastofnanir. Til að sjá hvar þú getur sótt um í landi þínu skaltu fara á Aðgangur að fjármagni.
Ef litla eða meðalstóra fyrirtækið þitt á í fjárhagserfiðleikum getur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins aðstoðað þig við að meta hvernig þér gengur og finna bestu lausnirnar. Fáðu að vita meira á Gjaldþrot og annað tækifæri.
Finndu starfsfólk í gegnum EURES
EURES bíður upp á mismunandi vettvanga þar sem hægt er að auglýsa lausar stöður og finna umsækjendur.
Skráðu þig frítt sem atvinnuveitandi til að nota Leit atvinnurekenda að ferilskrám til að finna fólk sem leitar að vinnu í þínum geira. Síðan getur þú lesið ferilskrár fólks á netinu og vistað þær sem passa best.
Ef þú hyggur á að ráða ungt fólk, þ.m.t. Lærlinga og starfsnema frá allri Evrópu gæti Drop’pin@EURES verið það sem þig vantar.
Af hverju auglýsirðu ekki á EURES gáttinni? Farðu á Auglýsa starf til að sjá hvernig þú gerir það. Hægt er að auglýsa í gegnum landsstarfagagnagrunn í landi þínu og tengt hann við EURES-gáttina. Veldu land þitt úr fellilistanum til að finna tengilið á staðnum fyrir það.
Vinnulöggjöf
Viltu ráða starfsfólk frá öðrum aðildarríkjum? Skoðaðu upplýsingar um atvinnuleyfi og hvernig starfsfólk er skráð í Búsetu- og starfsskilyrði.
Búðu til tengiliði
- Ef þú vilt vaxa á alþjóðavísu skaltu kíkja á Samstarfsnet evrópskra fyrirtækja til að fá ráðleggingar og stuðning. Hjá þeim eru þúsundir sérfræðinga sem geta komið þér í samband við gagnlega alþjóðlega tengiliði.
- Kíktu á komandi viðborði á síðu Evrópskra atvinnudaga. Á þessum viðburðum hefur þú tækifæri á að hitta stærri hóp atvinnuleitenda á einum stað. Þar getur þú kynnt fyrirtæki þitt og auglýst störf. Einnig getur þú skipulagt viðtöl þar til að ráða inn fólk á meðan á viðburðinum stendur. Ef þú getur ekki mætt á staðinn getur þú tekið þátt í gegnum netið.
- Einnig eru reglulega Evrópskir atvinnurekendadagar þar sem þú getur komist í kynni við önnur fyrirtæki og starfsmenntasérfræðinga í þínum geira.
- Hvað með að taka þátt í alþjóðlegri atvinnuráðstefnu? Það er enn önnur leið til að fá athygli og laða að þér besta starfsfólkið. Það er líka tækifæri til að skoða samkeppnina.
Sjáðu hvar þetta er allt að gerast á Viðburðadagatali Eures.
Viðskiptatækifæri
Getur þú boðið þjónustu sem framkvæmdastjórnin þarf? Hún ræður SME til að veita ýmiskonar þjónustu. Komstu að því hvaða samningar eru í boðið og kannski getur þú unnið útboð.
Hafir þú einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að smella á hlekkinn hérna að neðan til að hafa samband við EURES-starfsmann.
Tengdir hlekkir:
Sjálfstæð atvinnustarfsemi (vinnuskilyrði og lífskjör)
Byrjendaleiðarvísir að ESB-fjármögnun
EURES – leit atvinnurekenda að ferilskrám
Samstarfsnet evrópskra fyrirtækja
Viðburðadagatal Eures – Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
Starfsfólk EURES
Nánari upplýsingar:
Finndu EURES Starfsfólk
Atvinnu- og búsetuskilyrði í Eures-löndum
Vinnugagnagrunnur Eures
Þjónusta Eures fyrir vinnuveitendur
Viðburðadagatal Eures
Næstu viðburðir á Netinu
Eures á Facebook
Eures á Twitter
Eures á LinkedIn
Upplýsingar
- Útgáfudagsetning
- 20 September 2018
- Höfundar
- European Labour Authority | Directorate-General for Employment, Social Affairs and Inclusion
- Viðfangsefni
- Viðskipti /FrumkvöðlastarfVerkfærakista ESB fyrir hreyfanleikaYtri hagsmunaaðilarÁbendingar og ráðAtvinnudagar/viðburðirVinnumarkaðsfréttir/hreyfanleikafréttirNýliðunarstraumarSamfélagsmiðlarUngmenni
- Tengdir hlutar
- Búseta & atvinna
- Geirinn
- Accomodation and food service activitiesActivities of extraterritorial organisations and bodiesActivities of households as employers, undifferentiated goods- and servicesAdministrative and support service activitiesAgriculture, forestry and fishingArts, entertainment and recreationConstructionEducationElectricity, gas, steam and air conditioning supplyFinancial and insurance activitiesHuman health and social work activitiesInformation and communicationManufacturingMining and quarryingOther service activitiesProfessional, scientific and technical activitiesPublic administration and defence; compulsory social securityReal estate activitiesTransportation and storageWater supply, sewerage, waste management and remediation activitiesWholesale and retail trade; repair of motor vehicles and motorcycles